Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
accueil » Fréttir af starfi sendiráðsins » Heimsóknir

Sendiherra sæmd Fálkaorðunni [ fr ]

[21. október 2011]

Í tilefni af því að sendiherra lýkur brátt störfum á Íslandi, ákvað forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, að sæma hana fálkaorðunni.

Sendiherra sagðist vera heiðruð að taka við orðunni, sem hún leit á sem viðurkenningu fyrir styrkingu tengsla Íslands og Frakklands sem hefur átt sér stað síðustu ár.

Athöfnin fór fram á Bessastöðum 15. október 2011.

Sendiherra sótti heim og kvaddi forseta Íslands, Hr. Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, og einnig efnahags- og viðskiptaráðherra, Árna Pál Árnason, innanríkisráðherra, Ögmund Jónasson, og forstjóra Landhelgisgæslunnar, Georg Lárusson.

Sendiherra tjáði íslenskum yfirvöldum einlægt þakklæti fyrir móttökurnar og samstarfið á starfstímabili hennar hérlendis.

JPEG - 45 ko
Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, afhendir Caroline Dumas fálkaorðuna.

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS