[6. desember, 2011]
Alain Juppe, utanríkisráðherra Frakklands, sótti ráðherraráðstefnu um franska málið, sem haldin var í París 1. og 2.desember síðastliðinn. Á ráðstefnunni, sem stýrt hefur verið af Sviss síðan á leiðtogafundinum í Montreux árið 2010, komu saman fulltrúar 56 aðildarríkja og ríkisstjórna ásamt fulltrúum frá 19 samvinnuríkjum (observateurs de la Francophonie).
Í ræðu sinni minntist Alain Juppe á þær fjölmörgu áskoranir sem blasa við Alþjóðlegri stofnun franska málsins (OIF - "l’Organisation internationale de la Francophonie" www.francophonie.org), við að stuðla að varðveitingu franskrar tungu, stuðla að uppbyggingu alþjóðlegra stjórnhátta, styðja ríki sem taka upp lýðræðislegt stjórnkerfi sem og við að aðstoða kosningarferli í frönskumælandi löndum.
Á ráðstefnunni var farið yfir stefnumótun OIF sem og kostnaðaráætlun OIF og samstarfsaðila stofnunarinnar fyrir árið 2012. Sjónum var einnig beint að stuðningi stofnunarinnar við starfsemi í þjónustu friðar, lýðræðis og mannréttinda í hinum frönskumælandi heimi. Til viðbótar var aukinni samvinnu við erlenda samstarfsaðila fagnað, einkum í tengslum við samstarf stofnunarinnar við Deauville-samtökin, sem sett voru á fót til að aðstoða arabísk ríki þar sem umbætum eiga sér stað í átt að frjálsu og lýðræðislegu samfélagi.
Næsta ráðstefna og leiðtogafundur þjóðhöfðingja verður haldin í Kinshasa í október 2012.
