[ 2. nóvember 2011]
í tilefni af 20 ára afmæli RIKK (Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands), hefur stofnunin skipulagt fimmtu stóru ráðstefnuna um kvenna- og kynjarannsóknir, í samstarfi við Háskóla Íslands.
Vegna þessa mun Rachel Silvera koma til Íslands og halda fyrirlestur klukkan 13:30 í Norræna húsinu sem kallast "What are the Implications of the Financial Crisis on Gender Equality in Europe?"
Rachel Silvera er af frönsku bergi brotin, en hún er hagfræðingur og fyrirlesari við Sorbonne-háskólann Paris Ouest Nanterre La Défense og rannsakandi á vegum Sorbonne-háskólans CES-MATISSE í París.
Fyrirlesturinn er opinn öllum. Frekari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar má finna á https://rikk.hi.is.
