[17. janúar, 2011]
Alliance française í Reykjavík, sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið kynna Franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin í 12. sinn dagana 27. janúar til 9. febrúar í Háskólabíói og 17. til 20. febrúar í Borgarbíói á Akureyri.
Franska kvikmyndahátíðin er annar stærsti kvikmyndaviðburður Íslands, næst á eftir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Árlega sækja um 10.000 gestir frönsku kvikmyndahátíðina, sem er fyrsti stóri menningarviðburður ársins í Reykjavík. Það er Alliance française í Reykjavík sem skipuleggur hátíðina, í samvinnu við Græna ljósið, Institut français og sendiráð Frakklands á Íslandi. Eins og verið hefur er fjölbreytnin í fyrirrúmi á franskri kvikmyndahátið og það breytist ekki í ár. Sýndar verða ýmsar tegundir gæðakvikmynda frá Frakklandi, auk mynda frá frönskumælandi svæðum utan Frakklands, s.s. Québec og Tchad. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á kvikmyndir eftir kvenleikstjóra.
Sýningartíma kvikmynda má finna hér (á vefsíðu AF í Rvk) : http://www.af.is/fff2012/semaine.as...
Upplýsingar um þær tíu kvikmyndir sem sýndar verða á hátíðinni má finna í fréttatilkynningu sendiráðsins.
Félagsmenn í Alliance française (sýnið félagsskírteinið), menntaskólanemar og háskólanemar fá 40% afslátt af miðaverði (700 kr. í stað 1.250 kr.).
Einnig er hægt að kaupa miða fyrir fimm myndir á 3.900 kr. í Háskólabíói.
***
Opnunarmynd hátíðarinnar er sú margumrædda "The Artist" eftir Michel Hazanavicius. Kvikmyndin "La Guerre est déclarée" (Stríðsyfirlýsing) verður einnig sýnd á sérstökum viðburði á hátíðinni.
1. Listamaðurinn (The Artist)
2011 Frönsk kvikmynd/ Tegund: dramatísk gamanmynd/ Lengd: 100 mín / Leikstjórn: Michel Hazanavicius / Ađalhlutverk: Jean Dujardin, Bérénice Bejo, John Goodman.
Þessi mynd kom öllum að óvörum árið 2011 og er talin líkleg til að hreppa Óskarsverðlaunin 2012. Nú á tímum bíómynda í þrívídd, kemur „Listamaðurinn“ verulega á óvart: þetta er svart-hvít, þögul kvikmynd. Mjög djörf hugmynd sem gefur gersamlega slegið í gegn.
Þar er sögð saga George Valentin, sem var stjarna þöglu kvikmyndanna í Hollywood 1927. Þegar talmyndirnar komu til sögunnar, hrapaði stjarna hans mjög hratt. Á sama tíma reis stjarna Peppy Miller hátt í talmyndum, en hún hafði fram að því verið aukaleikari í mörgum þöglum myndum. Þessi kvikmynd fjallar um líf þeirra beggja og hvernig þau skarast.
Aðalleikari myndarinnar, Jean Dujardin, var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2011. Gagnrýnendur í New York völdu nýlega „Listamanninn“ sem bestu kvikmynd ársins og hún fékk einnig flestar tilnefningar – eða fimm talsins – hjá Independent spirit awards. Myndin varð einnig sigurvegari Golden Globe verðlaunahátíðarinnar en hún hlaut þrenn verðlaun á hátíðinni, meðal annars fyrir besta leikara í aðalhlutverki.
Í gagnrýni á vefsíðu New York Times má sjá eftirfarandi ummæli:
„Í kvikmyndinni „The Artist“ er lögð áhersla á að nýta víddir og eiginleika hins sjónræna miðils, með þvílíkum tilbrigðum og fegurð, að hún þarf einfaldlega ekki á talmáli að halda.“
http://movies.nytimes.com/2011/11/2...
2. Stríðsyfirlýsing (La guerre est déclarée)
2011 Frönsk kvikmynd/ Tegund: Drama / Lengd: 100 mín /
Leikstjórn: Valérie Donzelli / Ađalhlutverk: Valérie
Donzelli, Jérémie Elkaïm
Kvikmyndin La Guerre est déclarée (Stríðsyfirlýsing) verður einnig sýnd á sérstökum viðburði á hátíðinni. Þetta er annar stórviðburður á Franskri kvikmyndahátíð 2012!
Myndin er byggð á sönnum atburðum úr lífi leikstjórans sjálfs. Þetta er saga ungrar ástar, Rómeó og Júlíu, sem eru dregin harkalega út úr sínu hamingjuríka og áhyggjulausa lífi og neyðast til að horfast í augu við það óvænta í lífinu. Veikindi sonar þeirra neyðir þau inn í heim hinna fullorðnu. En þrátt fyrir þessar raunir gera erfiðleikarnir þeim kleift að blómstra, þau finna styrk og hugrekki hjá sjálfum sér, sem þau vissu ekki að þau ættu til.
Þetta er sú mynd sem fékk bestu viðtökurnar á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí s.l. – það var klappað í yfir 20 mínútur! Hún var valin mynd ársins í Frakklandi.
Í gagnrýni á vefsíðu Libération Next má sjá eftirfarandi ummæli:
„Kvikmyndin hristir sannarlega upp í áhorfendum með því að tvinna saman tregabundnu viðfangsefni við senur sem fá áhorfendur til þess að tárast af hlátri.“
