Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
accueil » Aðrar fréttir

Franski líffræðingurinn Jules Hoffmann hlýtur Nóbelsverðlaun í læknis- og lífeðlisfræði 2011. [ fr ]

[4. október, 2011]

Jules Hoffmann hlaut nýverið Nóbelsverðlaun í læknis- og lífeðlisfræði fyrir rannsóknarstörf sín. Hann deilir verðlauninum með hinum kanadíska Ralph Steinman og hinum bandaríska Bruce Beutler, fyrir tengdar rannsóknir þeirra á ónæmiskerfinu.

Hoffmann, sem er virtur líffræðingur á alþjóðavettvangi, hlaut einnig gullmedalíu CNRS á þessu ári (National Center of Scientific Research of France). En meðal fleiri veðlauna sem hann hefur hlotið má nefna Keio verðlaunin, Gairdner verðlaunin og Shaw verðlaunin.

Hoffmann hefur verið deildarstjóri rannsóknasviðs CNRS til fleiri ára, hefur starfað sem prófessor við háskólann í Strasbourg og hefur helgað vinnu sína til rannsókna á erfðafræðilegum og sameindafræðilegum þáttum sem stuðla að náttúrulegu ónæmi hjá skordýrum. Margar af uppgötvunum Hoffmann hafa varpað nýju ljósi á það varnarkerfi sem lífverur búa yfir gegn sýkingarvöldum, allt frá frumstæðum lífverum til mannskepnunnar sjálfrar.

Á meðal þess að vera forseti frönsku vísindaakademíunnar árið 2007 og 2008, setti Hoffmann á fót og stjórnar rannsóknarstofu hjá CNRS, sem leggur áherslu á rannsóknir á ónæmisviðbrögðum skordýra og þróun þeirra (Réponse immunitaire et développement chez les insectes). Rannsóknarstofan er hluti af rannsóknastofnun CNRS í sameinda-og frumulíffræði í Strasbourg, en þar starfar Hoffmann í dag og heldur rannsóknum sínum áfram ásamt samstarsfólki sínu.

Upplýsingar frá: CNRS

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS