Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
accueil » Aðrar fréttir

Arnaldur Indriðason hlýtur fyrstu verðlaun frönsku menningarhátíðarinnar « Boréales » í flokki spennusagna [ fr ]

[23. nóvember, 2011]

Fyrstu heiðursverðlaun í flokki spennusagna á « Boréales » menningarhátíðinni í Frakklandi voru veitt laugardaginn 19. nóvember 2011 á bókasafni d’Hérouville-Saint-Clair í Caen. Í tilefni af 20 ára afmæli hátíðarinnar voru verðlaunin veitt Arnaldi Indriðasyni fyrir skáldsögu sína « Bettý ». Þess má geta að skáldsögur Arnalds hafa verið gefnar út í 37, til að mynda Mýrin (útgáfa í Frakklandi árið 2005), Grafarþögn (útgáfa í Frakklandi árið 2006), Röddin (útgáfa í Frakklandi árið 2007), Kleifarvatn (útgáfa í Frakklandi árið 2008), Myrká (útgáfa í Frakklandi árið 2011) og loks Bettý (gefin út á vegum útgáfufélagsins "Les Éditions Métailié" árið 2011).

Verðlaunin voru veitt af Laurent Beauvais, svæðisstjóra Basse-Normandie héraðsins, í viðurvist forsvarsmanna bókmenntastofnunarinnar « Centre régional des lettres ». Franskur þýðandi Arnalds, Eric Boury, var einnig viðstaddur verðlaunaafhendinguna.

Arnaldur Indriðason

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS