Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
accueil » Fréttir af starfi sendiráðsins » Menning

Alliance française í Reykjavík er hundrað ára! [ fr ]

[14. október 2011]

Allt frá því Alliance Française í Reykjavík var stofnað, þann 16. október 1911, hefur félagið verið trútt því hlutverki sem Alliance française um heim allan eiga sameiginlegt:
-  Kynna frönsku og kenna hana öllum aldurshópum
-  Kynna menningu Frakka og frönskumælandi þjóða
-  Stuðla að fjölbreyttri menningu og menningarsamstarfi milli Íslendinga og Frakka.

Allt frá upphafi afmælisársins höfum við boðið upp á sérlega veglega dagskrá, meðal annars fjórar sýningar: yfirlitssýningu um franskar kvikmyndir á Íslandi, yfirlitssýningu á verkum Tomi Ungerer á Listahátíð í vor, sýningu um ævi og starf Nemirovsky í september og Fimmtíu ára ljósmyndaferil Marc Riboud sem nú stendur yfir í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, auk fyrirlestra um bókmenntir, menningu og vísindi, þar sem Denise Epstein fjallaði um Irène Nemirovsky, Jean-Christophe Victor fjallaði um Charcot og heimskautarannsóknir og Marie-Laure Bernadac fjallaði um Louise Bourgeois.



Og hátíðarhöldin halda áfram næstu vikur:

Mánudaginn 17. október 2011, kl. 15.00-16.30, HT101, Háskólatorg

Hringborðsumræður: „Þegar íslenska mætir frönsku – fjórir íslenskir rithöfundar segja frá áhrifum franskrar tungu og menningar á ritstörf sín"

Þátttakendur eru Auður Ava Ólafsdóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Pétur Gunnarsson og Sigurður Pálsson. Stjórnandi: Torfi H. Tulinius

Í tilefni af aldarafmæli sínu, leiðir Alliance française saman fjóra íslenska rithöfunda, sem allir tala reiprennandi frönsku, til að hittast og spjalla. Rithöfundarnir eru tveir karlmenn og tvær konur, á mismunandi aldri. Þau eru beðin um að velta fyrir sér spurningunni: hafa tengsl þeirra við franska tungu, listir og menningu (ekki bara bókmenntir, heldur listir í víðari merkingu) haft áhrif á skrif þeirra á íslensku, og ef svo er, hvernig kemur frönsk tunga eða frönsk menning inn í skriftirnar og almennt álit þeirra á íslenskum bókmenntum?

Komdu í Háskóla Íslands, Háskólatorg, sal HT 101, mánudaginn 17. október frá kl. 15.00 til 16.30, og taktu þátt í umræðunum.

Umræður fara fram á íslensku.

******

Föstudaginn 21., laugardaginn 22., sunnudaginn 23. október, og föstudaginn 4., laugardaginn 5. og sunnudaginn 6. nóvember.

Sex íslendingar fjalla um frönsku uppáhalds kvikmyndina sína í Bíó Paradís

Alliance française bað sex Íslendinga að fjalla stuttlega um kvikmynd að eigin vali. Hér er dagskráin:

21.10. Kvikmyndaleikstjórinn Kristín Jóhannesdóttir fjallar um Les Plages d’Agnès eftir Agnès Varda.

22.10. Poppspekingurinn Dr. Gunni fjallar um Le Charme discret de la bourgeoisie eftir Luis Buñuel.

23.10. Kvikmyndaleikstjórinn Dagur Kári fjallar um L’Argent eftir Robert Bresson.

4.11. Kvikmyndaleikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson fjallar um Les Vacances de M. Hulot eftir Jacques Tati.

5.11. Þáttastjórnandinn Sirrý fjallar um Paris eftir Cédric Klapisch.

6.11. Teiknimyndahöfundurinn Hugleikur Dagsson fjallar um La meute, hryllingsmynd eftir de Franck Richard.

Nánari sýningartímar verða kynntir á næstunni.

*****

Fimmtudaginn 27. október verður sérstakur fyrirlestur Vincent Debaene um Claude Lévi-Strauss og Regnskógabeltið raunamædda.

Í tilefni af því að stórvirkið Regnskógabeltið raunamædda eftir mannfræðinginn Claude Lévi-Strauss er nú komið út í íslenskri þýðingu Péturs Gunnarssonar býður Alliance française til landsins Vincent Debaene, en hann er sérfræðingur í verkum Claude Lévi-Strauss og sá um útgáfu heildarverka hans í hinni virtu La Pléiade ritröð hjá Gallimard-útgáfunni í Frakklandi.



Dagskrá:

Fimmtudaginn 27. október, frá kl. 16:00 til 18:00

1. Torfi H. Tulinius: Staða C. Lévi-Strauss í hugmyndaheimi Frakka

2. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: Claude Lévi-Strauss og mannfræðin

3. Pétur Gunnarsson, rithöfundur og þýðandi Regnskógabeltisins raunamædda fjallar um þýðinguna og les kafla úr henni.

4. Fyrirlestur Vincent Debaene, Claude Lévi-Strauss og Regnskógabeltið raunamædda, fyrirlestur á ensku.

5. Umræður

****

Fimmtudaginn 17. nóvember kl 20:00, Kaldalón í Hörpu

Tónleikarnir Joie de vivre: Sigríður Thorlacius syngur fimmtán franskar dægurlagaperlur.



Missið ekki af þessum frábæru tónleikum með einni bestu söngkonu okkar, Sigríði Throrlacius, þar sem hún syngur nokkrar fallegustu og þekktustu dægurlagaperlur Frakka.

Ath! Það eru aðeins 190 sæti.

Tónleikarnir eru haldnir með stuðningi sendiráðs Frakka á Íslandi.

Sjá nánar á: Vef okkar af.is, vef Hörpu harpa.is og á midi.is.

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS