Laugardagur 18. febrúar
18:00 Listamaðurinn (The Artist)
Sunnudagur 19. febrúar
16:00 Öld myrkursins (L’Âge des Ténèbres)
18:00 Stríðsyfirlýsing (La Guerre est déclarée)
Mánudagur 20. febrúar
18:00 Sá sem kallar (Un Homme qui crie)
Sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið kynna franska kvikmyndahátíð á Akureyri, haldin 18.-20. febrúar. Hátíðin var haldin í 12. sinn 27. janúar til 9. febrúar í Reykjavík og verður nú haldin í Borgarbíói á Akureyri.
Frönsk kvikmyndahátíð er annar stærsti kvikmyndaviðburður Íslands, næst á eftir Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Árlega sækja um 10.000 gestir frönsku kvikmyndahátíðina sem er fyrsti stóri menningarviðburður ársins.
Eins og áður er hátíðin einnig skipulögð á Akureyri og er fjölbreytnin í fyrirrúmi á franskri kvikmyndahátið en fjórar gæðakvikmyndir verða sýndar í Borgarbíói, tvær franskar, ein kanadísk og að auki ein frá Tsjad. Það er sendiráð Frakklands á Íslandi sem skipuleggur hátíðina á Akureyri, í samvinnu við sendiráð Kanada, Græna ljósið, Institut français og Alliance française í Reykjavík.
Leikstjórn: Michel Hazanavicius.
Aðalhlutverk: Jean Dujardin, Bérénice Bejo, John Goodman.
Opnunarmynd hátíðarinnar er The Artist eftir Michel Hazanavicius. Þessi mynd kom öllum að óvörum árið 2011 og er talin líkleg til að hreppa Óskarsverðlaunin 2012. Nú á tímum bíómynda í þrívídd, kemur Listamaðurinn verulega á óvart: þetta er svart-hvít, þögul kvikmynd. Mjög djörf hugmynd sem gefur gersamlega slegið í gegn.
Þar er sögð saga George Valentin, sem var stjarna þöglu kvikmyndanna í Hollywood 1927. Þegar talmyndirnar komu til sögunnar, hrapaði stjarna hans mjög hratt. Á sama tíma reis stjarna Peppy Miller hátt í talmyndum, en hún hafði fram að því verið aukaleikari í mörgum þöglum myndum. Þessi kvikmynd fjallar um líf þeirra beggja og hvernig þau skarast.
Aðalleikari myndarinnar, Jean Dujardin, var valinn besti leikarinn í aðalhlutverki á Kvikmyndahátíðinni í Cannes 2011. Gagnrýnendur í New York völdu nýlega Listamanninn sem bestu kvikmynd ársins og hún fékk einnig flestar tilnefningar – eða fimm talsins – hjá Independent Spirit Awards. Myndin varð einnig sigurvegari Golden Globe verðlaunahátíðarinnar en hún hlaut þrenn verðlaun á hátíðinni, meðal annars fyrir besta leikara í aðalhlutverki. Í gagnrýni á vefsíðu New York Times má sjá eftirfarandi ummæli: „Í kvikmyndinni „The Artist“ er lögð áhersla á að nýta víddir og eiginleika hins sjónræna miðils, með þvílíkum tilbrigðum og fegurð, að hún þarf einfaldlega ekki á talmáli að halda.“
La guerre est déclarée (Stríðsyfirlýsing). 2011. Frakkland. Drama. 100 mín.
Leikstjórn: Valérie Donzelli.
Aðalhlutverk: Valérie Donzelli, Jérémie Elkaïm.
Myndin er byggð á sönnum atburðum úr lífi leikstjórans sjálfs. Þetta er saga ungrar ástar, Rómeó og Júlíu, sem eru dregin harkalega út úr sínu hamingjuríka og áhyggjulausa lífi og neyðast til að horfast í augu við það óvænta í lífinu. Veikindi sonar þeirra neyðir þau inn í heim hinna fullorðnu. En þrátt fyrir þessar raunir gera erfiðleikarnir þeim kleift að blómstra, þau finna styrk og hugrekki hjá sjálfum sér, sem þau vissu ekki að þau ættu til.
Þetta er sú mynd sem fékk bestu viðtökurnar á Kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí s.l. – það var klappað í yfir 20 mínútur! Hún var valin mynd ársins í Frakklandi. Í gagnrýni á vefsíðu Libération Next má sjá eftirfarandi ummæli: „Kvikmyndin hristir sannarlega upp í áhorfendum með því að tvinna saman tregabundnu viðfangsefni við senur sem fá áhorfendur til þess að tárast af hlátri.“
Franska kvikmyndahátiðin hefur frá árinu 2008 lagt áherslu á að sýna kvikmyndir hins frönskumælandi heims utan Frakklands. Til að mynda sýnum við með stolti kvikmynd frá Tsjad sem hlotið hefur mikið lof. Kvikmyndgerð í Québéc hefur einnig staðið með miklum blóma undanfarin ár og má í því sambandi nefna kvikmyndaleikstjórann vinsæla, Denys Arcand, sem er með mynd á hátíðinni í ár.
Un homme qui crie (Sá sem kallar). 2011. Tsjad. Drama. 92 mín.
Leikstjórn: Mahamat Saleh Haroun.
Aðalhlutverk: Youssouf Djaoro, Diouc Koma, Emile Abossolo M’Bo.
Sá sem kallar er fyrsta kvikmyndin frá Afríku sem fær verðlaun á Kvikmyndahátíðinni í Cannes: „Prix du jury“ 2010. Adam er á sextugsaldri og gamall sundmeistari. Hann er sundkennari á lúxushóteli í N’Djamena. Hann neyðist til að gefa stöðuna eftir til sonar síns, Abdel, þegar kínverskir fjárfestar kaupa hótelið. Hann upplifir þessar aðstæður mjög illa, og finnst hann vera settur út í horn í þjóðfélaginu.
L‘Âge des ténèbres (Öld myrkursins). 2007. Kanada. Dramatísk gamanmynd. 108 mín.
Leikstjórn: Denys Arcand.
Aðalhlutverk: Marc Labreche, Diane Kruger, Sylvie Léonard.
Kanadíski leikstjórinn Denys Arcand leikstýrði myndinni vinsælu, Hnignun ameríska heimsveldisins (Le Déclin de l’Empire américain). „Fyrst maður getur hlegið að sjálfum sér, þá er ekki allt í kalda kolum. Arcand sannar það.“
Jean-Marc dreymir dagdrauma þar sér hann sjálfan sig sem riddara, leikhús- og kvikmyndastjörnu eða sem metsöluhöfund. Konur falla unnvörpum fyrir honum og sofa hjá honum... Í raunveruleikanum er hann hins vegar ósköp venjulegt möppudýr, eiginmaður sem enginn tekur eftir, glataður pabbi sem reykir í laumi. En Jean-Marc spyrnir fótum við dagdraumunum og ákveður að gefa sjálfum sér nýjan séns í raunveruleikanum.
