Þýðingar- og útgáfustyrkir
Aðstoð við útgáfu innan « Jules Verne» áætlunarinnar
Stuðningur við erlenda útgefendur sem felur í sér greiðslu (misháa eftir atvikum) á útgáfuréttindum verka sem íslenskir útgefendur velja til útgáfu, sem og laun þýðanda og útgáfustyrk.
Aðstoð við þýðendur frá Centre National du Livre
Tvenns konar styrkir eru í boði :
- Þýðingarstyrkur: Þessi styrkur felur í sér viðbót við laun þýðanda þegar um er að ræða verk sem er sérstaklega erfitt í þýðingu og laun frá útgefanda nægja ekki.
- Styrkur til dvalar í Frakklandi: Þessi styrkur gerir þýðendum sem þess óska kleift að dvelja í Fraklandi við þýðingarstörf á frönskum verkum.
Aðsetur listamanna
- Aðsetur í Cité Internationale des Arts í umsjá Culturesfrance
Þetta aðsetur er hugsað fyrir erlenda listamenn úr öllum listgreinum sem vilja vinna að ákveðnum verkefnum í Frakklandi. Culturesfrance greiðir fyrir leigu á vinnustofu - húsnæði. Umsóknum um aðsetrið skal skilað í menningardeild franska sendiráðsins að minnsta kosti sex mánuðum fyrir upphaf dvalarinnar.
- Alþjóðlegt aðsetur Recollets
Ráðhús Parísar og franska utanríkisráðuneytið bjóða erlendum listamönnum úr öllum listgreinum að dvelja í Centre International d’accueil et d’échanges des Récollets, sem er virt aðsetur, opnað árið 2003, og staðsett í hjarta Parísar við Canal Saint-Martin.
Heimasíða Alþjóðlegs aðseturs Recollets
- Aðsetur fyrir listamenn á alþjóðlegum stúdentagörðum í París
Alþjóðlegir stúdentagarðar í París bjóða erlendum listamönnum að dvelja í þrjá til tólf mánuði á stúdentagörðunum í París.
Listgreinar : myndlist, hönnun, grafísk hönnun, ljósmyndun, vidéolist…), arkitektúr og tónlist (tónlistarfólk, söngvarar og tónskáld).
Til að fá frekari upplýsingar um þessa styrki og umsóknarferlið, vinsamlegast hafið samband við menningardeild franska sendiráðsins.
